Og þá höldum áfram þar sem frá var horfið. Ég var að tala um hvernig halda má leik "ferskum" og nefndi þrjá þætti (stjórn, umhverfi, breytt spilun) sem hægt er að nýta sér. Ég stekk held ég bara beint út í og byrja að útskýra hvað ég átti við:
StjórnKynnt er til leiks eitthvað nýtt sem viðkemur stjórn á leiknum. T.d. eldblómið í Super Mario Bros sem flestir kannast við, eða skikkjan í Super Mario World sem gerir Mario kleift að fljúga, eða þá "double-jump" sem kemur fram í mörgum leikjum.
Inn í þetta falla líka öll vopn og tæki af ýmsu tagi. (eitt gott dæmi er "gravity gun" úr Half-Life 2)
Sem sagt allt sem viðkemur stjórn leikmanns á leiknum.
Hægt er einfaldlega að passa að hafa fjölbreytt og skemmtileg stjórntæki í leiknum frá byrjun, eða þá að kynna sífellt ný vopn eða tæki, eða notast við "power-ups" (aftur eldblómið í Mario, og sveppurinn góði og stjarnan).
Hægt er að flokka þetta svo allt niður í einhverjar sub-kategoríur.
UmhverfiAllt sem að hefur áhrif á persónu leikmanns í leiknum sem kemur ekki frá leikmanni. Það eru þá óvinir, þyngdar- og annarskonar öfl, hönnun borða leiksins og þess háttar.
Nýir óvinir krefjast breyttrar hugsunar, þarf að hugsa um nýjar leiðir til að sigrast á því sem maður hefur ekki séð áður. Eða þá gamlir óvinir undir nýjum kringumstæðum, kannski maður hafi áður einungist barist við þá á opnum svæðum, en svo þarf maður að hugsa alla herkænskuna upp á nýtt þegar maður mætir þeim í þröngum göngum eða undir öðrum nýjum kringumstæðum.
Og undir þetta fellur þá almennt séð hönnun borða leiksins, sem er mikilvægt að haldist fersk og fjölbreytt. Ekki má notast um of við samskonar uppsetningu aftur og aftur, fólk þreytist á því.
Breytt spilunHeld að þetta mætti flokka sem undirflokk í 'stjórn', en vildi minnast á þetta sér af því mér finnst þetta vera sérlega áhugavert og líklega afar öflugt vopn í hönnun
eftirminnilegra leikja.
Með 'breytt spilun' á ég við þegar leikir breytast að einhverju leyti (stundum verulegu) í einhvern tíma. Kannski þessi "platformer" leikur verði að kappakstursleik á einum punkt í sögunni (Jak 2), eða þegar það eru "auto-scroll" borð í Super Mario World / Super Mario Bros. 3, eða þá í Half-Life 2 þegar maður sest undir stýri á bíl og keyrir meðfram ströndinni.
Sem sagt
stjórntækjum leiks og eða
markmiðum er breytt, kannski svona smá blanda af 'stjórn' og 'umhverfi'.
Þetta brýtur upp hönnun leiksins og gefur leikmanni kost á að gera, í smá tíma, eitthvað annað en það sem leikurinn býður venjulega upp á.
World of Goo, minn uppáhaldsleikur árið 2008, var sífellt að bjóða upp á eitthvað nýtt. Engin tvö borð voru eins, hvorki í útliti né spilun, og á einum tímapunktu breyttist allur leikurinn á stórfelldan hátt bæði myndrænt séð og hvað spilun varðar og svo mikil var undrunin að ég sat dofinn fyrir framan skjáinn í smá tíma með risastórt bros stimplað yfir fésið áður en ég hélt áfram að spila. Það hvað leikurinn var fjölbreyttur og ferskur út allan þann tíma sem það tekur að klára hann gerði það að verkum að hann er mjög minnisstæður.
Mæli með að fólk kíki á vefsíðu
2D Boy og næli sér í demo af leiknum.
ps. Er að reyna að íslenska nokkur hugtök, svona upp á framtíðar leikjahönnunar blogg pósta, og þægi glaður uppástungur:
player - Held að
leikmaður sé fínt orð, en er til í að hugsa málið ef betri þýðing berst til mín.
player character - Uhm...
leikmannspersóna? Oj, ekki fallegt.
gameplay -
Spilun? Einfalt, en ekki alveg nógu gott finst mér.
Leikspilun? Hmm...